SKÁLDSAGA Á ensku

The Pickwick Papers

The Posthumous Papers of the Pickwick Club eða bara The Pickwick Papers eins og hún er jafnan kölluð var fyrsta skáldsaga Charles Dickens. Kom hún þannig til að hann var í kjölfar greina sinna Sketches by Boz sem komu út á bók 1836 beðinn um að skrifa framhaldssögu í tímarit. Efnið var að einhverju leyti skilgreint af útgefendum en Dickens hafði samt frjálsar hendur innan þess ramma. Úr þessu öllu varð safn af lauslega tengdum frásögnum. Naut sagan mikilla vinsælda meðal almennings og þá ekki síst fyrir þær fjölmörgu persónur sem í henni er að finna. Er stundum talað um að sagan sé fyrsta skáldsagan sem skapar sína eigin hliðarveröld, eins og að vera prentuð í óleyfi, leiksýningar voru gerðar upp úr henni, samdar voru brandarabækur þar sem aðalpersónur sögunnar voru í aðalhlutverki og alls konar annar varningur sem tengdist henni.


HÖFUNDUR:
Charles Dickens
ÚTGEFIÐ:
2016
BLAÐSÍÐUR:
bls. 946

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :